Bob Hannah, svæðisstjóri sölumála Delta Air Lines í Evrópu.
Bob Hannah, svæðisstjóri sölumála Delta Air Lines í Evrópu.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Ferðalangar á leið til eða frá New York munu frá og með næsta sumri geta valið um fjölbreytta þjónustu um borð í flugvélum Delta Air Lines. Á viðskiptafarrými verða 15 sérhönnuð lúxussæti sem hægt er að breyta í rúm ef farþegi vill sofa á leiðinni. Einnig verður hægt að fá fimm rétta veislumáltíð með sérvöldum víntegundum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Delta Air Lines mun hefja sumarflug milli Keflavíkurflugvallar og Kennedy í New York. Frá og með 12. júní mun félagið í samstarfi við Air France KLM vera með daglegt flug.

Bob Hannah er svæðisstjóri sölumála Delta Air Lines í Evrópu.