Alcoa Fjarðaál veitti í gær 26 styrki til samfélagsverkefna á Austurlandi að upphæð samtals 38 milljónir króna. Afhendingin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcoa Fjarðaráli.

Úr fréttatilkynningu:

„Stærsti einstaki styrkurinn, rúmlega 17 milljónir króna, er styrkur sem Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum veitir Háskólanum í Reykjavík til að vinna að því með Verkmenntaskóla Austurlands og Þekkingarnetinu, að efla þekkingarsamfélag í Fjarðabyggð. Styrkurinn er til þriggja ára. Þá fékk Kirkju- og menningarmiðstöðin á Eskifirði tæplega tveggja milljón króna styrk frá Samfélagssjóði Alcoa. Aðrir sem fengu  styrki voru íþrótta- og ungmennafélög og menningarviðburðir á borð við 700IS Hreindýraland og Jasshátíð Austurlands en Fjarðaál hefur styrkt þessa viðburði árlega.

„Það er aðdáunarvert hvernig þessar tvær menningarhátíðir hafa byggst upp hér fyrir austan en báðar hafa þær vakið mikla athygli bæði innanlands og utan og eru með listviðburði á heimsmælikvarða. Þetta skiptir miklu máli fyrir Austurland,“ sagði Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, þegar hann afhenti styrkina.

Skógræktarfélag Reyðarfjarðar hlaut einnig rúmlega einnar milljónar króna styrk til að gróðursetja 1000 plöntur, en félagið hefur árlega fengið styrki til gróðursetningar frá Fjarðaáli. Mörg smærri samfélagsverkefni fengu einnig styrki, til dæmis Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði, Tengslanet austfirskra kvenna, Ferðafélag Fjarðamanna, Menningarráð Austurlands og áhugahópur um rathlaup á Austurlandi. Þá voru einnig veittir styrkir til félagsmiðstöðva barna og unglinga í Fjarðabyggð og til tónlistarsumarbúða barna á Eiðum. Frá því að Alcoa Fjarðaál hóf starfsemi á Austurlandi fyrir sjö árum hafa Samfélagssjóður Alcoa og fyrirtækið lagt rúmlega hálfan milljarð króna í samfélagsverkefni á Austurlandi. „Framlag Alcoa til samfélagsverkefna er liður í því að styrkja innviði samfélagsins á Austurlandi þannig að það sé betur í stakk búið að  taka við nýjum íbúum og til að Austurland verði enn eftirsóknarverðari staður að búa á,“ sagði Tómas Már. Hann sagði einnig að Fjarðaál hefði frá upphafi lagt áherslu á að vera í fremstu röð hvað varðar samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.

„Okkur var frá upphafi ljóst að svo stórt fyrirtæki hefði mikil áhrif í litlu samfélagi og í Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar er leitast við að fylgjast náið með þeim áhrifum, þannig að unnt sé að sjá ef eitthvað er að fara úrskeiðis og grípa í taumana. Sjálfbærniverkefnið er einstakt verkefni hér á landi og jafnvel í heiminum öllum og á nýrri heimasíðu verkefnisins www.sjalfbaerni.is er hægt að sjá hvernig því vindur fram,“ sagði Tómas Már ennfremur.“