Jóhann Ólafsson & Co., umboðsaðili OSRAM á Íslandi, gerði á dögunum samning við fyrirtæki innan Samorku, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, um sölu á um 50 þúsund ljósaperum árlega næstu þrjú árin. Alls eru þetta um 150.000 ljósaperur sem fara til ýmis konar rekstrar á vegum orku- og veitufyrirtækjanna, m.a. í ljósastaura til götulýsingar á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögum um land allt.

Í tilkynningu kemur fram að samningurinn er gerður í kjölfar útboðs Samorku. Alls bárust 8 tilboð frá 7 fyrirtækjum. Í tilkynningunni er ekki gefið upp hversu mikið ljósaperurnar 150 þúsund muni kosta að öðru leyti en því að samningurinn hlaupi á tugum miljlóna króna.

Þetta er stærsti einstaki samningur um sölu á ljósaperum sem Jóhann Ólafsson & Co hefur gert til þessa. Um er að ræða allar perur sem Samorkufyrirtækin hyggjast nota næstu þrjú árin. Samorkufyrirtækin eru HS Veitur í Reykjanesbæ, Norðurorka á Akureyri, Orkubú Vestfjarða á Ísafirði og Orkuveita Reykjavíkur í Reykjavík.