Hrefna Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum en fyrirtækið er umfangsmest á því sviði hér á landi.

Hrefna útskrifaðist með B.Sc í vélaverkfræði frá Háskóla Reykjavíkur árið 2013 og hefur starfað hjá Elkem Ísland síðustu 12 ár sem framkvæmdastjóri og leiðtogi.

Hrefna tekur við stóru búi en Veitur reka þrettán hitaveitur sem þjóna um 65% íslensku þjóðarinnar. Fimm hitaveitnanna eru á Vesturlandi, sjö á Suðurlandi og sú langstærsta er á höfuðborgarsvæðinu.

Heita vatnið í hana er fengið frá virkjunum systurfélagsins Orku náttúrunnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og úr borholum Veitna á lághitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ. Borholurnar eru 78 talsins, 74 dælustöðvar eru í rekstri hjá fyrirtækinu og 26 miðlunargeymar.

Samanlögð lengd lagna ríflega 3.000 kílómetrar og um 90 milljónir rúmmetra af heitu vatni er dreift árlega til íbúa og fyrirtækja á veitusvæði Veitna á suðvesturhorni landsins.