Gler- og plastframleiðandinn Romag Holdings skilaði 2,76 milljónum punda, um 350 milljónum króna, í hagnað fyrir skatta á síðasta rekstrarári sem lauk í september. Í Hálffimm fréttum Kaupþings segir að það hafi verið 44% aukning á milli ára.

Hagnaður á hlut nam 4,7 pensum og jókst um 52% á milli ára. Atorka Group er stærsti hluthafinn í Romag með 21% hlut sem metinn er á rúma 2,8 milljarða króna. Romag hafði hækkað um 11% seint í dag en gengishækkun á árinu nemur um 76%.

Forsvarsmenn Romag reikna með áframhaldandi söluvexti einkum í Evrópu samfara aukinni eftirspurn eftir endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við sólarorku. Þetta mun gefa Romag ýmis tækifæri í gegnum PowerGlaz, glerframleiðslu sem breytir sólarljósi í orku, en þessi framleiðsla er mesti vaxtarbroddur félagsins og myndar um 40% af starfsemi þess, samkvæmt því sem segir í Hálffim fréttum Kaupþings.