Vegagerðin hefur samið við verktakafyrirtækið Vélaleigu AÞ ehf. í Reykjanesbæ um að klára lagningu vegar um Gjábakkaveg á Lyngdalsheiði sem Klæðning hafði haft með höndum.

Engar vanefndir höfðu þó orðið á verksamningi vegna framkvæmda Klæðningar á Lyngdalsheiði. Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir að það hafi í raun verið að frumkvæði Klæðningar að ákveðið hafi verið að semja við nýjan verktaka um að ljúka framkvæmdum.

__________________________________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á vefnum. Hægt að óska eftir lykilorði og áskrift á vefnum.