Landsbankinn hefur ákveðið að ganga til samninga við Arkþing ehf. og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýbyggingu bankans við Austurhöfn í Reykjavík.

Sjö arkitektateymi voru í október sl. valin til að skila inn frumtillögum að hönnun hússins og í janúar bárust bankanum tillögur frá sex teymum, að viðhafðri nafnleynd. Þriggja manna ráðgjafaráð var bankastjóra og bankaráði til fulltingis við ákvörðunina og mælti ráðgjafaráðið með þeirri tillögu sem varð fyrir valinu.

Þegar samningar við tillöguhöfunda liggja fyrir mun vinna við fullnaðarhönnun hússins hefjast. Frumtillagan getur tekið breytingum á hönnunarstigi, þótt heildaryfirbragð hússins verði óbreytt. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í byrjun næsta árs. Bygging hússins verður boðin út.

Segir húsið fallegt

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, segir húsið sem Arkþing og C.F. Møller hafi teiknað vera fallegt og að það kallast vel á við umhverfi sitt. „Við teljum að það muni sóma sér vel í miðborginni og verði verðmæt eign fyrir Landsbankann,“ segir Helga Björk. „Tillagan hæfir starfsemi bankans vel og uppfyllir best þær forsendur sem við lögðum upp með.“

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að með framkvæmdinni verði starfsemi bankans flutt í mun minna, hagkvæmara og hentugra húsnæði. „Einn helsti kostur tillögunnar er að vinnurýmin eru ákjósanleg og með góðum innbyrðis tengslum sem styðja við nútíma vinnuumhverfi þar sem áhersla verður lögð á verkefnamiðaða vinnuaðstöðu,“ segir Lilja Björk.

„Húsið er vel hannað skrifstofu- og verslunarhúsnæði og þeir hlutar hússins sem bankinn hyggst leigja eða selja undir aðra starfsemi eru vel heppnaðir. Það skiptir miklu máli að skipulag hússins er sveigjanlegt og því verður auðvelt að móta húsið að breytingum á starfsemi bankans. Þetta er fjárfesting til framtíðar.“

Eru nú í 13 húsum í miðborginni

Landsbankinn er nú með starfsemi í 13 húsum í miðborg Reykjavíkur, að langstærstum hluta í leiguhúsnæði. Núverandi húsnæði bankans er bæði óhentugt og óhagkvæmt fyrir rekstur bankans.

Bankaráð Landsbankans ákvað vorið 2017 að byggja húsnæði fyrir starfsemi bankans að Austurbakka 2 við Austurhöfn. Bankinn mun nýta um 10.000 m2 í nýju húsi, eða um 60% af flatarmáli hússins, en selja eða leigja frá sér um 6.500 m2 sem munu nýtast fyrir verslun og aðra þjónustu. Með flutningi í nýtt hús mun starfsemi sem nú fer fram á um 21.000 m2 rúmast á um 10.000 m2.

Arkitektateymin sem skiluðu inn frumtillögum að hönnun hússins voru:

  • Arkþing og C.F. Møller
  • BIG og Arkiteó í samstarfi við BIG Engineering, VSÓ ráðgjöf, Dagný Land Design og Andra Snæ Magnason
  • Henning Larsen og Batteríið Arkitektar
  • Kanon arkitektar ehf. og Teiknistofan Tröð ehf.
  • PKdM arkitektar
  • Teymið - A2F arkitektar, Gríma arkitektar, Kreatíva teiknistofa, Landmótun og Trivium

Í ráðgjafaráðinu sátu G. Oddur Víðisson arkitekt, Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt hjá Landsbankanum og Valgeir Valgeirsson, verkfræðingur hjá Landsbankanum.