Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 22% milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist um 92% á milli vikna.

Í vikunni sem leið nam veltan um 2,2 milljörðum en í fyrri viku nam veltan um 2,9 milljörðum króna. Meðalvelta á hvern samning er um 29,1 milljón.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 58% samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR) og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði.

Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 76 en voru 81 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 83,8 á viku frá áramótun.