Velta á fasteignamarkaði í vikunni minnkaði nokkuð milli vikna eða um 18%. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 53 í vikunni 1. ágúst - 7. ágúst en var 81 í vikunni þar áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði tæplega 1,8 milljarðar en var í fyrri viku tæplega 2,2 milljarðar sem var yfir meðallagi en meðalvelta á viku undanfarna þrjá mánuði er 2,0 milljarðar.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 64% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni var tæplega 33,5 milljónir króna en í fyrri viku var meðalvelta á hvern samning 26,7 milljónir.