Velta á fasteignamarkaði jókst töluvert milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist lítillega eða um 6% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 64% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 77 en voru 49 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 75,6 á viku frá áramótun, líkt og í fyrri viku..

Í vikunni sem leið nam veltan tæplega 2,2 milljörðum króna en í fyrri viku nam veltan um 1,5 milljörðum króna.

Meðalvelta á hvern samning var 29,2 milljónir króna og minnkar frá vikunni á undan þegar meðalvelta á hvern samning var 30,4 milljónir. Meðaltal á árinu er 33 milljónir á hvern samning.