Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega í vikunni eða um 15% og nam tæpum 1,3 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Kaupsamningum fjölgaði lítillega milli vikna en meðalupphæð á hvern samning er enn há frá því í síðustu viku. Fjögurra vikna meðalvelta er nú tæpir 1,2 milljarðar króna en rétt er að taka fram að fyrir fimm vikum var fjögurra vikna meðalvelta undir milljarði króna.

Um miðjan janúar fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug og nær nú fyrst, 9 vikum seinna, yfir milljarð króna á ný.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 55% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 33 í vikunni en 26 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 32 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Eins og áður sagði er meðalupphæð á hvern samning nokkuð há, líkt og í síðustu viku, eða 38,9 milljónir króna og lækkar um tæpar 4 milljónir milli vikna. Það er nokkuð yfir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur einnig verið tæpar 32 milljónir króna frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 13% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Rétt er þó að vekja athygli á því að um þetta leyti í fyrra fór að hægja verulega um á fasteignamarkaði sem sést best á því að velta á milli ára hefur aðeins dregist saman um 13% en munurinn milli ára hefur síðustu vikur og mánuði verið á bilinu 45% - 70%.