Velta á fasteignamarkaði hélt áfram að dragast saman milli vikna í vikunni sem leið samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni rétt rúmir 1,6 milljarðar króna en var í síðustu viku rúmi 1,7 milljarðar. Veltan dregst því saman um 6% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 25% milli vikna.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 59 í vikunni sem leið en 62 samningum var þinglýst í vikunni þar áður.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 27,6 milljónir króna sem nokkuð undir meðalveltu en meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,4 milljónir.

Meðalvelta á viku frá áramótum er rúmir 2,3 milljarðar en þá hefur 72 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 74% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.