Í Vegvísi Landsbanka Íslands segir að velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í september hafi verið í hæstu hæðum eða rúmlega 19 ma.kr. Þar segir einnig að veltan hafi aðeins einu sinni verið jafn há sem var í júní á þessu ári en þá var veltan einnig rúmir 19 ma.kr. Kaupsamningar hafa aftur á móti verið fleiri en nú en það var í nóvember 2004 og voru þeir þá 1.165 talsins. Var það skömmu eftir að samkeppni ÍLS og bankanna hófst en nú í september voru þeir alls 924.

Mikil veltuaukning milli ára
Í september fjölgaði þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu um 6,9% frá fyrra mánuði og veltan jókst um 22,3%. Samanborið við september 2006 er fjölgun samninga 90,1% og veltuaukningin 128% samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. En í ágúst og september á síðasta ári var velta og fjöldi kaupsamninga í lágmarki. Sé aftur á móti miðað við árið 2005, þegar meira líf var á fasteignamarkaði, kemur í ljós að í september í ár er veltan 48% meiri á sama tíma árið 2005. Fjöldi kaupsamninga hefur hins vegar aðeins aukist um tæp 3%. Á síðustu tveimur árum hefur fasteignaverð hækkað um 20% og skýrir hækkun fasteignaverðs því aðeins hluta veltuaukningarinnar.


Vísbending um verðhækkanir til skamms tíma
Fjölgun kaupsamninga og aukning veltu gefur góða vísbendingu um markaðsaðstæður á fasteignamarkaði til skamms tíma. Bendir þessi mikla velta til þess að búast megi við áframhaldandi þrýstingi til verðhækkana á næstunni. Sé aftur á móti litið lengra fram á veginn eru aðrir þættir sem gefa betri vísbendingar um verðþróun en það eru til að mynda lánskjör, framboð nýbygginga, fólksfjölgun og kaupmáttarbreytingar.

Spáum lækkun til lengri tíma litið
Í Hagspá Greiningardeildar kom fram að við gerum ráð fyrir að aukið framboð nýrra fasteigna og skert kaupgeta fasteignakaupenda valdi viðsnúningi í verðþróun fasteigna um mitt næsta ár. Þá sé líklegast að fasteignaverð taki að síga þannig að hækkun ársins í ár gangi að mestu til baka. Við þessa leiðréttingu ætti að nást meira jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á fasteignamarkaði.