Velta á fasteignamarkaði í vikunni hélt áfram að dragast saman milli vikna eða um 7%. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 49 í vikunni sem leið en 53 samningum var þinglýst í vikunni þar áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði tæplega 1,7 milljarðar en var í fyrri viku tæplega 1,8 milljarðar. Það er nokkuð undir meðallagi en meðalvelta á viku frá áramótum er um 2,3 milljarðar en þá hefur 71 samningi verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 71% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni var 33,7 milljónir króna en í fyrri viku var meðalvelta á hvern samning 33,5 milljónir. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum er um 33 milljónir.