Velta á fasteignamarkaði í vikunni sem leið var um 1,1 milljarður króna og dróst saman um 37% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í síðustu viku rúmir 1,7 milljarðar króna en meðalvelta frá áramótum er rúmir 2,2 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 40 í vikunni sem leið en 55 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali hefur 68 samningum verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 27,6 milljónir króna og minnkar um rúma fjórar milljónir milli vikna. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,1 milljón krónur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 78% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.