Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst verulega í síðustu viku eða um 88% milli vikna. Þannig nam veltan um 1.436 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins) en rétt er að hafa í huga að síðustu tvær vikur þar á undan hefur veltan verið nokkuð undir meðallagi.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú rétt tæpur 1,1 milljarður króna. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað þrjár vikur í röð en í lok desember fór fjögurra vikna meðalveltan undir milljarð króna og það var ekki fyrr en í lok febrúar sem veltan fór aftur yfir milljarð.

Þá náði fjögurra vikna meðalvelta hámarki í byrjun apríl þegar hún nam tæpum 1.380 milljónum króna en hún hefur þó, sem fyrr segir, lækkað síðan þá.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 46% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Alls var 28 kaupsamningum þinglýst í vikunni en 27 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 32 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

En meðalupphæð á hvern samning hækkar nú verulega á milli vikna, nemur 51,3 milljónum króna á hvern samning, sem er nokkuð yfir meðaltali, en var 28,3 milljónir í vikunni þar á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljónir króna en eru rétt tæpar 35 milljónir króna frá hvern samning frá síðustu áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 11% og gefur það e.t.v. heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Rétt er þó að hafa í huga að um þetta leyti í fyrra var þegar byrjað að kólna nokkuð á fasteignamarkaði og því harla mikill munur milli ára. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.