Velta á fasteignamarkaði í vikunni minnkaði talsvert milli vikan eða um 23%, þrátt fyrir að fleiri kaupsamningum væri þinglýst en í vikunni áður en þá hafði veltan aukist um 30% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði um 2,3 milljarðar en var í fyrri viku um 3 milljarðar sem var þó nokkuð yfir meðallagi en meðalvelta á viku frá áramótum er tæplega 2,4 milljarðar.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 75% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 82 en í fyrri viku voru 64 samningum þinglýst. Að meðaltali hefur 72 samning verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni var tæplega 28 milljónir króna sem nær meðallagi en í fyrri viku var meðalvelta á hvern samning nokkuð há eða tæplega 48 milljónir. Meðaltal á hvern samning frá áramótum er um 33 milljónir króna.