Velta á fasteignamarkaði  lækkaði um 28% á milli vikna en í vikunni sem leið nam veltan um 1,4 milljörðum en í fyrri viku nam veltan um 2 milljörðum króna. Þetta er minnsta velta frá því í lok janúar samkvæmt tölur frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Meðalvelta á hvern samning er þó 30 milljónir líkt og í síðustu viku.

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára.

Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var aðeins 49 en voru 67 í vikunni þar áður. Ef litið er til ársbreytingar á veltu hefur kaupsamningum fækkað um 82%

Þinglýstir samningar eru að meðaltali 85 á viku frá áramótun.