Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 11. júlí til og með 17. júlí 2008 var 79 að því er fram kemur í Markaðsfréttum Fasteignamats ríkisins.

Þar af voru 65 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.182 milljónir króna og meðalupphæð á samning 40,3 milljónir króna. Samkvæmt Fasteignamatinu var 15 kaupsamningum þinglýst á sama tíma á Akureyri. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 252 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,8 milljónir króna. Á sama tíma var 8 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 163 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,3 milljónir króna.

Fasteignamat ríkisins vekur athygli á að meðalupphæð kaupsamnings sé ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.