Þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu var velta á fasteignamarkaði í vikunni rúmir 2,3 milljarðar og breytist lítillega milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Nánar tiltekið var veltan 2.318 milljónir en var í síðustu viku 2.136 milljónir þannig að veltan eykst um 9% milli vikna en hafði í síðustu viku dregst saman um 1% milli vikna.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 66 í vikunni sem leið en 80 samningum var þinglýst í vikunni þar áður þannig að meðalupphæð á hvern samning hækkar nokkuð.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 35,1 milljón króna sem er lítillega yfir meðaltali. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,6 milljónir. Síðustu þrjár vikur á undan hefur meðalvelta á hvern samning verið tæpar 27 milljónir sem er undir meðallagi.

Meðalvelta á viku frá áramótum er tæplega 2,4 milljarðar en þá hefur 73 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 70% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.