Metvelta var á gjaldeyrismarkaði í marsmánuði en samkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti fyrir helgi nam velta á millibankamarkaði um 1.212 milljörðum króna í mars og hefur aldrei verið meiri í einum mánuði.

Veltan meira en tvöfaldaðist frá fyrri mánuði þegar hún nam 550 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Velta með gjaldeyri á millibankamarkaði á 1. fjórðungi ársins nam alls 2.000 milljörðum króna sem er svipuð velta og var á fyrri helmingi síðasta árs. Veltan á 1. ársfjórðungi síðasta árs var sú sama og var nú í marsmánuði einum og sér.

Til samanburðar nam velta með gjaldeyri í mars á síðasta ári 413 milljörðum króna.

Sífellt meiri velta

„Velta með gjaldeyri hefur verið að aukast hér á landi síðustu misserin. Heildarvelta með gjaldeyri á millibankamarkaði á síðasta ári var samtals 4.967 milljörðum króna og hefur ársveltan ríflega fimmfaldast frá síðustu aldamótum,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

„Ljóst er að samhliða því sem þátttakendum á íslenskum gjaldeyrismarkaði fjölgar og tengslin við alþjóðlega gjaldeyrismarkaði aukast munu umsvif og dýpt gjaldeyrismarkaðarins vaxa líkt og endurspeglast í aukinni veltu á milli ára. Heildaraukning veltu á gjaldeyrismarkaði er þó líklega mun meiri en þessar tölur segja til um þar sem velta utan millibankamarkaðar hefur einnig aukist undanfarin misseri,“ segir jafnframt í Morgunkorni Glitnis.