Rekstrartekjur Eimskips meira en tvöfölduðust milli ára á þriðja ársfjórðungi en þær námu 387 milljónum evra eða 35 milljörðum króna samanborið við 180 milljónir evra eða 16 milljarða á sama tíma árið 2006. Rekstrargjöld námu 377 milljónum evra eða 34 milljörðum samanborið við 179 milljónir evra eða 16 milljarða árið áður.

Hagnaður Eimskips eftir skatta á þriðja ársfjórðungi 2007 nam 14 milljónum evra eða 1,3 milljörðum samanborið við 4 milljónir evra eða 360 milljónir á sama tímabili árið 2006.

Fjármagnsgjöld voru 16 milljónir evra eða 1,4 milljarðar á þriðja ársfjórðungi samanborið við 9 milljónir evra eða 810 milljónir árið áður. Mikill fjármagnskostnaður skýrist af skammtímaláni vegna yfirtöku félagsins á Atlas Cold Storage í upphafi ársins, eða um 50% af heildarfjármagnsgjöldum. Stefnt er að sölu hluta fasteigna Atlas fyrir lok rekstrarársins 2007 og verður andvirði sölunnar nýtt til að greiða niður skuldir.

?Afkoma Eimskips á fyrstu níu mánuðum 2007 var í takt við áætlanir og það sama má segja um þriðja ársfjórðung í heild sinni. Velta fyrstu níu mánaða 2007 er tæpar 1.184 milljónir evra eða 107 milljarðar og EBITDA var 100 milljónir evra eða 9 milljarðar. Þar af skilar flutningastarfsemi 92 milljónum evra eða rúmum 8 milljörðum og flugreksturinn 8 milljónum evra eða um 700 milljónum. Rekstur Eimskips einkenndist af miklum vexti í tekjum og betri afkomu. EBITDA hlutfallið hefur hækkað úr 6% á síðasta ári í 9% á þriðja ársfjórðungi 2007 en mikill vinna hefur verið lögð í að samþætta og endurskipuleggja nýjar einingar innan félagsins.

Eimskip er nú orðið stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki í heimi með um 180 kæli- og frystigeymslur í fimm heimsálfum. Eimskip hefur að undanförnu byggt upp öflugt net frysti- og kæligeymslna og ræður fyrirtækið einnig yfir öflugu flutninganeti sem styður við geymslugetu félagsins.

Ég sé mjög mikil tækifæri í öflugri uppbyggingu í flutningastarfsemi, skiparekstri og kæli- og frystiflutningum um allan heim. Við teljum þá starfsemi vera mjög arðsama og stöðuga fyrir hluthafa félagsins til lengri tíma litið. Eftirspurn eftir flutningum og geymslu á kæli- og frystivörum eykst sífellt á alþjóðavísu. Við höfum nú náð þeirri stöðu að verða leiðandi á þessu sviði í heiminum og ætlum okkur aukna hlutdeild í þeim vexti sem framundan er," segir Baldur Guðnason forstjóri Eimskips.