Velta erlendra greiðslukorta hér landi nam 6,8 milljörðum króna í maímánuði. Þetta er aukning um 16,5% miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Vísis í dag.

Heildarvelta debetkorta var á þessu tímabili 35,3 milljarðar sem er aukning um 2,6% miðað við maí í fyrra. Heildarvelta kreditkorta var 32,2 milljarðar í maí sem er aukning um 3,4%.