Heildarvelta debetkorta í mars 2013 var 29,4 milljarðar króna sem er 1,7% aukning frá fyrri mánuði en 4,4% minnkun miðað við sama mánuð árið áður, samkvæmt tölum Seðlabankans. Heildarvelta kreditkorta í mars 2013 var 30,1 milljarðar króna sem er 3,9% minnkun frá fyrri mánuði og 3,4% aukning miðað við sama mánuð árið áður.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í mars 2013 var 5,2 milljarðar sem er aukning um 37,5% miðað við sama tímabili í fyrra.