Í febrúar 2012 var 69 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst sem er 60% aukning frá sama mánuði 2011. 70 samningum var þinglýst utan höfuðborgarsvæðisins.

Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 4.869 milljónir króna en 1.557 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í upplýsingum Þjóðskrár Íslands um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í febrúar voru 28 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 30 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 1.359 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 708 milljónir króna. Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 501 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 319 milljónir króna. Af þessum samningum voru 6 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.