Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í desember 2011 var 373. Heildarvelta nam 12,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 33,2 milljónir króna. Þegar desember 2011 er borinn saman við desember 2010 fjölgar kaupsamningum um 19% og velta eykst um 36%

Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 7,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,5 milljörðum króna.

Þegar desember 2011 er borinn saman við nóvember 2011 fækkar kaupsamningum um 21,5% og velta minnkar um 15,3%. Í nóvember 2011 var 475 kaupsamningum þinglýst, velta nam 14,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,8 milljónir króna. Þetta kemur fram hjá Þjóðskrá Íslands.