Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.322 milljarðar á tímabilinu maí 2017 til apríl 2018 sem er 6,8% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Á tímabilinu mars–apríl 2018 var veltan 694 milljarðar eða 7,2% hærri en sömu mánuði árið áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Almennt eykst velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu en aukningin er ekki eins hröð og hún hefur verið undanfarin ár. Velta í bílaleigu minnkaði aðeins milli ára og var 2,5% lægri í mars–apríl 2018 en á sama tímabili 2017. Velta þjónustu sem ekki er virðisaukaskattskyld er ekki talin með hér. Dæmi um slíka þjónustu er áætlunarflug innanlands og akstur leigubifreiða. Til ársloka 2015 var þjónusta ferðaskrifstofa, hestaleiga og allir farþegaflutningar innanlands undanþegin virðisaukaskatti.

Mesta hækkun milli ára var í heild- og umboðsverslun með fisk og var veltan í mars–apríl 2018 sú sama og sömu mánuði árið 2017. Vegna verkfalls sjómanna var velta í þessari grein óvenju lág fyrri hluta árs 2017.

Sala á vélknúnum ökutækjum var 10% lægri á tímabilinu mars–apríl 2018 en sömu mánuði árið á undan. Á sama tímabili jókst velta í bifreiðaviðgerðum og viðhaldi um 16%. Minni bílasölu má rekja til þess að bílaleigur keyptu mun færri nýja bíla í vor en fyrir ári síðan.

Velta í upplýsingatækni og fjarskiptum jókst um 15% milli ára, aðallega vegna aukningar í hugbúnaðarframleiðslu og gagnahýsingu.

Virðisaukaskattskyld velta fasteignafélaga jókst um 13% milli ára. Leiga íbúðarhúsnæðis er ekki virðisaukaskattskyld og því ekki talin með hér.