Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 15. febrúar til og með 21. febrúar 2013 var 90. Þar af voru 59 samningar um eignir í fjölbýli, 24 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.966 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33 milljónir króna.

Í frétt Þjóðskrár kemur fram að vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hafi verið 118,7 stig í janúar 2013 og hækkar um 0,5% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,9%.