Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2014 var 534. Heildarvelta nam 18,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 35,4 milljónir króna. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands .

Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 4,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2 milljörðum króna. Þegar september 2014 er borinn saman við ágúst 2014 fjölgar kaupsamningum um 7,2% og velta eykst um 7,4%. Í ágúst 2014 var 498 kaupsamningum þinglýst, velta nam 17,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 35,3 milljónir króna.