Um 7.600 kaupsamningum var þinglýst árið 2012 og námu heildarviðskipti með fasteignir á landinu öllu rúmlega 205 milljörðum króna. Meðalaupphæð á hvern samning var um 27 milljónir króna. Til samanburðar var veltan árið 2011 tæplega 172 milljarðar króna, kaupsamningar um 6.600 og meðalupphæð hvers samnings um 26 milljónir. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur við aukist um rúmlega 19% frá árinu 2011 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 15%.

Fjallað er um fasteignamarkaðinn á árinu 2012 á vef Þjóðskrár . Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 162 milljarða króna, kaupsamningar verða um 5.300 og meðalupphæð kaupsamings verður um 30,6 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2011 var rúmlega 135,7 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var rúmlega 4.600. Meðalupphæð samninga árið 2011 var um 29,5 milljón króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um rúmlega 19% og fjöldi kaupsamninga hefur aukist um rúmlega 15%.