Heildarvelta á fasteignamarkaði fyrir vikuna 11. til 17. september var 9.219 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,3 milljónir króna.

Alls voru fjöldi þinglýstra samninga á höfuðborgarsvæðinu 218, þar af 165 samningar um eignir í fjölbýli, 36 um sérbýli og 17 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Þetta er örlítið undir meðaltali þinglýstra samninga síðustu 12 vikna, en meðaltalið eru 232 samningar. Meðaltals velta síðustu 12 vikna er 8.866 milljónir króna og veltan því yfir meðaltali.