Fjármál einstaklinga
Fjármál einstaklinga
© Nordic photos (Nordbild)
Heildarvelta debetkorta í júlí 2011 var 34,7 milljarðar króna sem er 4,7% aukning frá fyrra mánuði en 4,4% aukning miðað við júlí 2010. Heildarvelta kreditkorta í júlí 2011 var 29,1 milljarður króna sem er 0,1% samdráttur frá fyrra mánuði en 14,3% aukning miðað við sama mánuð árið áður. Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi nam 10,9 milljörðum króna sem er 36,9% aukning frá fyrra mánuði og 12,4% aukning miðað við júlí 2010. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis var 5,6 milljarðar króna í júlí en 6,3 milljarðar króna júní.