Úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,68% í dag og var gildi hennar 989,72 í lok dags. Aðeins voru viðskipti með bréf í fjórum félögum.

Flest viðskipti voru með bréf í Högum eða samtals sex en bréf í félaginu hækkuðu um 0,57% í dag í 57 milljóna króna viðskiptum. Næstmesta veltan var í bréfum Marel sem hækkuðu um 2,5% í dag í 29 milljóna viðskiptum. Icelandair Group lækkaði um 0,18% í dag í tæplega 23 milljóna viðskiptum. Lokagengi Össurar var 191,50 og hækkaði um 0,26% í dag en veltan var innan við milljón.