Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,6% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.656,42 stigi.

Mest var hækkunin á gengi bréfa Reginn hf., eða um 3,29%, en velta í viðskiptum með bréfin námu tæpum 293 milljónum króna. Þá hækkuðu gengi bréfa Eikar fasteignafélags um 1,93% og Icelandair Group hf. um 1,35%. Gengi bréfa Nýherja lækkuðu um 4,07% og Össurs hf. Um 5,22 en lítil velta var með bréfin.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag nam 5.225 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,04% í dag í 1,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,04% í 0,3 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,03 í 1,3 milljarða viðskiptum.