Hagnaður varð af rekstri Íslandspósts hf. á árinu 2006 nam 240 milljónum króna og var EBITDA um 507 milljónir króna. Heildartekjur félagsins á síðasta ári námu 5,7 milljörðum króna og höfðu aukist um 14% frá fyrra ári.

Heildareignir voru 4,3 milljarðar króna í árslok 2006 og höfðu aukist um 12% frá fyrra ári. Eigið fé í árslok 2006 var 2,4 milljarðar. Félagið greiddi 90 milljónir króna í arð til ríkissjóðs á árinu.

Íslandspóstur hf. hefur annast einkarétt ríkisins á póstþjónustu ásamt skyldu þess til að tryggja öllum landsmönnum aðgang að ákveðnum þáttum póstþjónustu á jafnræðisgrundvelli, svokallaða alþjónustu. Í samræmi við tilskipun frá Evrópusambandinu hefur einkarétturinn verið markvisst takmarkaður á undanförnum árum og á árinu 2006 var hann takmarkaður enn frekar og nær nú til áritaðra bréfa undir 50 grömmum. Við breytinguna minnkar hlutfall tekna félagsins af þjónustu samkvæmt einkarétti og er meirihluta tekna félagsins nú aflað á samkeppnismarkaði. Fyrirhugað er að einkarétturinn verði að fullu afnuminn í ársbyrjun 2009.