Það sem af er degi er velta með bréf í Kaupþing 4,4 milljarðar en alls eru 64 hreyfingar búnar að vera á bréfum bankans.

Þar af voru ein stök viðskipti upp á 3,6 milljarð króna rétt fyrir kl. 14 en í byrjun dags voru ein stök viðskipti upp á 151 milljón króna.