Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 606 milljörðum króna í ágúst og dróst saman um 44% frá fyrri mánuði.

Á sama tíma í fyrra var velta á millibankamarkaði 749 milljarðar króna og hefur því dregist saman um 19% miðað við sama tíma árið áður.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabanka Íslands.