Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 714 milljörðum króna í júní en var 368 milljarðar króna á sama tíma í fyrra.
Hefur veltan því aukist um 94% ef bornir eru saman mánuðirnir en þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.
Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 40% í júní frá fyrri mánuði.
Krónumarkaður
Velta á millibankamarkaði með íslenskar krónur í júní nam 30,5 milljörðum króna. Þetta er hækkun um 21 milljarð króna frá því í maí samkvæmt tölum frá Seðlabankanum.