Zinzino Iceland ehf. selur innfluttar kaffivélar, kaffi, te og aðra fylgihluti. Félagið velti 625 milljónum króna árið 2015, en heildarveltan nam 724 milljónum árið áður. Félagið hagnaðist um 121.538 krónur árið 2015, en um 1,3 milljónir árið 2014.

Eignir Zinzino námu alls 96 milljónum króna undir lok ársins, en 41 milljón undir lok árs 2014. Skammtímakröfur hafa aukist verulega milli ára og er það megin ástæðan fyrir hækkun eigna.

Eigið fé hefur breyst lítillega milli ára. Árið 2014 nam eigið fé 5,2 milljónum, en sú upphæð nam 5,3 milljónum undir lok árs 2015. Félagið skuldaði 90,8 milljónir 2015, en 35,9 milljónir árið áður.

Handbært fé í árslok 2015 nam 4,27 milljónum.