Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu nam 3.542 milljónum króna frá 23. til 29. janúar sl. Þetta kemur fram í nýrri frétt Þjóðskrár Íslands .

Alls voru gerðir 63 samningar um eiginr í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á hvern samning var 39,8 milljónir króna.

Heildarveltan var nokkru undir meðaltali síðustu tólf vikna sem nemur rúmum 4,8 milljörðum króna.