Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku nam rúmum 4,9 milljörðum króna. Er það hærri fjárhæð en í síðustu viku þegar veltan nam 4,4 milljörðum, og jafnframt yfir meðaltali síðustu tólf vikna (4.333 milljónir króna). Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands .

Alls voru gerðir 139 kaupsamningar í síðustu viku og voru 103 samningar um eignir í fjölbýli, 30 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á hvern samning var 35,4 miljlónir króna.