Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 1,92% í tæplega 3,5 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá hækkaði sömuleiðis gengi bréfa Icelandair Group um 0,46%. Önnur hækkun var ekki á hlutabréfamarkaði.

Á hinn bóginn lækkaði gengi hlutabréfa Haga um 1,07% í 73 milljóna króna veltu.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,57% og endaði í 1.072,8 stigum. Veltan á hlutabréfamarkaði tók kipp í dag frá í gær. Hún nam 120 milljónum króna nú miðað við 65 milljónir króna í gær.