Uppsjávarveiðiskipið Venus NS kom til Vopnafjarðar í gær með 1.000 tonn af makríl. Aflinn fékkst í fjórum holum á aðeins 34 klukkustundum.

Frá þessu segir í tilkynningu.

Fyrir á Vopnafirði var Víkingur AK og Venus komst því ekki að löndunarbúnaðnum fyrr en síðdegis í dag.

„Þetta gekk vel hjá okkur,“ segir Bergur Einarsson, skipstjóri á Venusi. „Það er mjög mikil ferð á makrílnum og aðalgangan er nú komin austur í Síldarsmugu. Það hefur verið dagamunur á veiðinni en heilt fyrir hafa aflabrögð verið góð og allt gengið vel.“

Að sögn Bergs er makríllinn í Síldarsmugunni á sama tíma í ár og verið hefur en sá munur er á úthaldinu að veiðin var betri nú í íslensku lögsögunni og stóð lengur en menn hafa átt að venjast.

„Þetta er fínn fiskur. Makríllinn þarna úti er heldur smærri en sá sem við veiddum hér heima en meðalvigtin er þrátt fyrir það 450 til 460 grömm. Auk okkar Íslendinganna eru aðallega færeysk, rússnesk og grænlensk skip að veiðum en fjöldinn er misjafn eftir því hvort skipin eru í löndun eða á veiðisvæðinu,“ segir Bergur í frétt Brims en að hans sögn hefur heimsiglingin verið róleg. 340 sjómílur voru til Vopnafjarðar frá þeim stað þar sem híft var í síðasta sinn og vitað var um væntanlega löndunarbið á Vopnafirði.