Verðandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og einn valdamesti maðurinn í Washington þegar nýtt þing kemur saman er John Boehner. Hann er þingmaður áttundu svæðis í Ohio.

Boehner hélt tilfinningaríka ræðu á kosninganótt þar sem hann þakkaði m.a. stuðningsmönnum sínum fyrir aðstoðina í kosningabaráttunni.  Í síðari hluta ræðunnar þegar Boehner ræddi um uppvöxtin brast hann í grát.  Ræðuna má sjá hér .