Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 103,2 stig í desember síðastliðnum og hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði, á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 107,1 stig, óbreytt frá nóvember, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Frá desember 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evrusvæðinu og 5,9% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,8% í Lettlandi og 6,6% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan 0,8% á Möltu og 1,2% í Finnlandi.