Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,4%.

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2008 hækkaði um 1,47% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,49% frá febrúar.

Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 3,1%. Þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 2,9% og á bensíni og olíum um 5,0%.

Vetrarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% (0,26%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,1% (0,22%), þar af voru 0,15% áhrif vegna hærri raunvaxta og 0,07% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% sem jafngildir 12,8% verðbólgu á ári (12,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis). Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.