Verðbólga í Noregi lækkaði í ágúst, en hún mældist 0,4% á mánaðargrundvelli og hafði þá lækkað úr 0,6% í júlí, segir Greiningardeild Glitnis.

Lækkunina má einkum skýra með verðlækkun á fatnaði og símaþjónustu. Sérfræðingar höfðu spáð verðbólgunni óbreyttri milli mánaða og kom lækkunin því nokkuð á óvart. Verðbólga reiknuð á ársgrundvelli lækkaði úr 2,2% í 1,9%, segir greiningardeildin.

Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi mældist 1,1% milli fjórðunga og jókst frá fyrsta ársfjórðungi en þá mældist hann 0,8%. Atvinnuleysi á þessu ári hefur verið minna en undanfarin fimm ár og hefur einkaneysla aukist samhliða því. Fjárfestingar jukust um 5,4% á öðrum ársfjórðungi eftir að hafa dregist saman á þeim fyrsta.

Olíuverð hefur mikil áhrif á efnahagslífið í Noregi en olía telur um 40% af heildarútflutningi landsins. Greinilega má sjá breytingar á olíuverði endurspeglast í hlutabréfavísitölunni OBX þar sem olíufyrirtækin vega þungt. Í lok ágúst hafði vísitalan hækkað um 14,4% frá áramótum. Í ágúst fór hún hinsvegar lækkandi en það er í samræmi við lækkandi olíuverð undanfarnar vikur, segir greiningardeildin.

Norski seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti fimm sinnum frá því í júní 2005. Síðasta vaxtahækkunin var 17.ágúst síðastliðinn og hækkuðu vextir þá í 3%. Næsti vaxtaákvörðunardagur verður 26.september, en Hagstofa Noregs hefur spáð stýrivöxtum í 3,25% í lok ársins.