Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,4 stig (2005=100) í júlí síðastliðinn og lækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 105,7 stig, en það er 0,4% hækkun frá júní, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Frá júlí 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 6,3% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,9% í Lettlandi og 6,3% á Íslandi. Minnst var verðbólgan 1,4% í Póllandi og Finnlandi, segir í tilkynningunni.