Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,8 stig (2005=100) í október og hefur hækkað um 0,2% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 107,1 stig, hækkaði um 0,2% frá september samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands.

Frá október 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,8% að meðaltali í ríkjum EES, 1,6% á evrusvæðinu og 5,8% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,3% í Ungverjalandi og 5,8% á Íslandi. Minnst var verðbólgan 0,6% í Lúxemborg og 0,8% í Tékklandi.