Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2009 er 336,0 stig og hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði. Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist nú 11,9% en var í mars 15,2%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. 5 ár. Þar sést, eins og kunnugt er hvernig verðbólgan hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og náði 18,6% hámarki í janúar s.l. en hefur síðan þá minnkað nokkuð hratt.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 311,6 stig og hækkaði hún um 0,84% frá mars.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 8,2% (vísitöluáhrif 0,33%) og verð á fötum og skóm um 3,2% (0,19%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 1,6% (-0,23%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,19% og -0,04% af lækkun raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (9,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Fram kemur á vef Hagstofunnar að vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2009 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2005-2007. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.